Fjöll í austri fagurblá Freista dalabarnsins. Ungur fylgir æskuþrá Upp til jökulhjarnsins. Sveimað heimahögum frá Hef ég vors á degi, Víða stíða þræddi þá þunga hraunavegi. Heiðin breiða hugumkær Hvetur viljann ofar. Leiðin seiðir, fráum fær, Fögrum sýnum lofar. Gangan sækist öruggt enn Urðarróti móti. Einatt hlutu heiðamenn Höggvinn fót á grjóti. Hver, sem ofar á að ná, Einskis metið getur þótt í fangið fái sá Fjúk og hretið betur. Anda heitum yndi nóg Unaðsreitir geyma. Seinna leitar þráin þó þinna sveita heima.