Gleði og glæstu framtíðar drauma Ég man þegar ég speglaðist Í gullslegnu vatni Og sá sjálfa mig brosa Svanurinn sem kenndi mér Forðum að fljúga Er nú farinn, floginn á brott Og ég sit hérna eftir Alveg vængjalaus Og velti því fyrir mér Hvort ég fái nokkurn tíma aftur að fljúga Ég festi mig við arfa í garðinum Hjartað mitt er að springa Skelfingar skjálfti í líkama mínum Ríkir og reiðin er óflýjandi Líkami minn er ólgusjór Og ég vona að þið drukknið öll með mér Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur Og lungun mín fyllast af vatni Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur