Öll orð þín voru eins Og orðin undir eins Skruppu saman Saman sátum við Við og við Átum hjörtu okkar saman Þú skrappst út og ég skrapp aftur saman Ég vildi að við værum alltaf saman Þú kallar á og kyssir mig Ég er þín ást og ljúfa Lítið leikfang fyrir þig Veik vængbrotin dúfa Heimur horfir á mig hnigna Hringiðan tekur við Í næsta skrefi veruleikans En veruleikur visnar skjótt Í hugarheimi sárrar sálar Ég þykist stara gluggann á En hann starir víst á mig En einhvernveginn virðist ekkert verða afturkvæmt Og einhvernveginn virðist ekkert verða afturkvæmt Við og við við sátum átum hjörtu okkar saman Þú skrappst út og ég skrapp aftur saman