Taktu í nefið, tvinnahrund, Til er baukur hlaðinn. Komdu svo með káta lund Og kysstu mig í staðinn. Taktu í nefið tyrfingur, Tróðan gulls nam segja; Enn er kveikur orðinn þur, Ætlar ljós að deyja. Taktu í nefið tróðan gulls, Tóbakskornið mæta. En er skorið ei til fulls Um það máttu bæta.