Kishore Kumar Hits

Þursaflokkurinn - Orðsending (Live) şarkı sözleri

Sanatçı: Þursaflokkurinn

albüm: Þursaflokkurinn á hljómleikum (Live)


Urðarmenn skjálfa í næðingnum
Og dauflegt er félagslífið í tugthúsum.
Fylliraftar öskra í dimmum skotum.
Og ráðherrar fá oftast magasár með aldrinum
Prestar hafa púnga undir augum
Úngbörn ota trébyssum að foreldrunum sínum
Og harma það eitt að skotin skuli ekki hrífa.
En því miður bíðum við eftir því
Að hamingjubomban springi - plak -
... og friðurinn er tryggður.
Það á ekki lengur við
Að tala um blindan sem blindan.
Það á ekki lengur við
Að tala um lamaðan sem lamaðan.
Það á ekki lengur við
Að tala um heyrnalausan.
Því enginn sér
Því enginn heyrir
Því enginn gengur
Ekkert gerist lengur.
Sjáið nú!, sagði blindur
Við þann heyrnalausa,
Þá er hinn lamaði stökk hæð sína.
Vist er þessi vetur æði harður
Og lítið um óseld bros.
Samt megum við ekki gugna.
Fólk er mikilsvert
Og fólk er alveg lygilega gott.

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar