Vera mátt góður ef vilt þar til stunda Vanti þig ei Guðs styrk þar til að skunda En ef þú þann veg þenkir Seinna, seinna, seinna, seinna Sett hef jeg mjer nýjan lifnað að byrja Líf þitt stutt og ljót afdrif hver mun spyrja Enn ef þú þenkir þanninn Loksins, loksins, loksins, loksins Líf mitt vil jeg með Guðs hjálp bæta Lengur munt lifa og æ lukku mæta