Ykkur vil ég óska góðs Ekki er mér það bannað Eftir staupa fylli flóðs Farið þið hvort á annað Brúðhjónunum óska ég Að þau éti vel smér Fiskinn með feiknum rífi Flotinu ekki hlífi Ketið með kappi snæði Kvikindishjónin bæði Brúðhjónanna bolli Berst að höndum mér Í tískunni ég tolli Og tala svo sem ber Ávaxtist sem önd í mó Eða grásleppa í sjó Hér á enda hnoða ég ró Haldið þið piltar við