Gegnum holt og hæðir Horfi ég og sé, Það sem var í þátíð, Það sem á að ske. Ég sé í gegnum sortann, Ég se svo vel í gegn, Ég veit ei neitt um veginn, Mér verður það um megn. Ég heyri horfnar raddir, Hvísla fornan seið, Ég geng í gegnum veggi, Mér gefst ekki önnur leið. Að eiga svör við öllu, En ekki neina spurn, Að eiga blóma í eggi En ekki neina skurn. Ég heyri horfnar raddir, Hvísla fornan seið, Ég geng í gegnum veggi, Mér gefst ekki önnur leið. Og því er ekki auðvelt, Að eiga þessi völd, Að skynja hvað er handan Við heimsins gluggatjöld.