Hér er ekkert hrafnaþing Hér er engin tregi. Farðu vel með Vatnsdæling Vinur elskulegi. Hér er gott að dansa Hér er stofan ný. Hún er öll tjölduð Og þakin með blý. Að iðka brátt sinn listaleik Landsins kappar verða. Blíðuspjall og spúsan keik Mun sperrtan jarlinn herða. Hér er gott að dansa Hér er stofan ný. Hún er öll tjölduð Og þakin með blý. Sigtryggur í svefni vær Sendir frá sér pústur. Hjá honum liggur haukleg mær, Þó hangir lostakústur. Hér er gott að dansa Hér er stofan ný.