Hjer undir jarðar hvilir moldu Sæmundar Klemenssonar líkami. Sá var fæddur seytján hundruð og sextíu, auknum þremur; Gefinn til ekta guðelskandi Ingibjörgu Sæmundar ástkærri dóttur. Hann var numinn til himnaskara Hvar hann tilbiður sinn lausnara; Þar enginn grátur mæðir meir. Krists undir merkjum kröptugt barðist, Kórónu hrepti því hann varðist; Sæmundur Klemensson ei deyr.