Mynd þín af speglinum Gæti eins verið fréttamaðurinn á skerminum Verurnar sem hreyfast með glerinu. Eða bara eitthvað Sem ímyndunaraflið ræður ekki við. Farð'aldrei yfir á rauðu Græni kallinn í götuljósinu er vinur þinn Og hatrið í augum fólksins er bara plat. Nei reynd'ekki að þræta Það er þrjúhundruðsextíuogfimm dagar í árinu Og lífið er staðreynd. Hvort sem þú notar málband Nýjustu uppgötvanir í sálfræði Eða reynir að cirka það út Er fjarlægðin milli manna sú Sama og vegalengdin á milli húsa. En samt er einsog einsemdin Sé bara sérstök hlíð á sjálfum sér. Lærð að meta blokkina Lyftuna sem gengur fyrir rafmagni Blokkina sem er rúðustrikið síða í reikningsbók Ljósgráu mölina og fánann sem er jafn stoltur og þú Lærð að meta blokkina. Þó póstkassinn sé alltaf tómur Ertu örugglega til það geturðu sannað Með löggiltum pappírnum Skilvísum afborgunum af græjunum Og andardrættinum fyrir framan spegilinn. Ef þú tryggir þig Er sjónvarpið óhult í stofunni Þú þarft ekki einu sinni að draga fyrir gluggann Til að heimurinn verði ljósblár í myrkrinu. Þú ert seif einsog stórveldin Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að einhver Setjist hinu megin við samningaborðið í huganum.