Ég heiti Lísa, Og líð hverjum sem er Hvað sem er. Ef þig eitthvað skortir – Þá veistu að ég er enginn fiskur, Hef heitt blóð og hlýju handa þér. Ó Lísa, ég lifi fyrir þig Og aðeins þig. Lísa ég lifi fyrir þig og aðeins þig Þú ríður hjarta mínu á slig – Það hættir að slá Ef þú yfirgefur mig. Lísa, lýstu það upp Lísa Myrkrið sem er að kæfa mig. Lísa, lýstu það upp Lísa Myrkrið Sem leggst eins og farg Á sál mína og veru. Það ljóst að það hyggst rífa mig í sig. (Allan sólarhringinn.)