Kishore Kumar Hits

Þursaflokkurinn - Harley Davidson şarkı sözleri

Sanatçı: Þursaflokkurinn

albüm: Ókomin forneskjan


Nei, ekki vel ég mér vökunnar fjötra,
Vanans og hversdagsins fölnuðu tötra,
Heldur skal knýja hinn kraftmikla gand,
Klofvega þeysa yfir draumanna land.
Ég finn ég á mátt, finn ég á von,
Finn ég á Harley Davidson.
Hestöflin þúsund í klofinu krauma,
Og kveikja í æðunum hagstæða strauma.
Sigga er komin og sest nú á bak,
Hún segir að ég sé sko fyrirtak.
Leyfðu mér allt, kynsæla kvon,
Kalt er á Harley Davidson.
Við þeysum af stað og hún þjappar sér betur
Og þrýstir sér að mér eins fast og hún getur,
Segir hún vilji helst vera minn ofn
Og vefst eins og hrísla um máttugan stofn.
Leyfðu mér Sigríður lon og don,
Lífið er Harley Davidson.

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar