Kishore Kumar Hits

Spilverk þjóðanna - Af síra Sæma şarkı sözleri

Sanatçı: Spilverk þjóðanna

albüm: Á bleikum náttkjólum (Sérútgáfa)


Sæmi fróði hann situr í Frans
Í Svartaskóla og rembist við
Að rísa' undir nafni hann rínir svo stíft
Í rúnir að gleymd honum er sjálft nafnið
Sjálft nafnið, eigið nafnið
Að gleymt honum er það sjálft nafnið

Skólarektor er skrattin, þú veist
Með skósíðan hala, klaufir og horn
Hann kennir þar guðspeki' og galdur svartan
Og gildi þess að rækta sjálfur sitt korn
Eigið korn, bygg og korn
Sjálfur ræktar sitt bygg og sitt korn

Sæmi þú varst jú séður vel
Og selurinn slægur þó gabbast vann
En Sæmundaredduna segðu mér það
Hvort samdir þú hana' eða var það hann
Var það hann, Sæmi, hann
Hvort samdi' hana þú eða hann

En djöfullinn hann er í dagsbrúnum nú
Það duga' ekki prettirnir framar á hann
Hann veit glöggt hvað verðskuldar hann að fá fyrir
Verk eins og þau sem kauplaust hann vann
Hjá Sæma, síra Sæma
Vann hann kauplaust hjá Sæmanum fróða

Mórallinn er vertu stéttvís og stoð
Undir styrka og dugmikla alþýðustjórn
Gakktu í dagsbrún og gamna þér við
Að geta upp á næstu stórsóknar fórn
Hjá Gvendi (hvaða Gvendi?) honum Gvendi
Stórsóknar fórn hjá Gvendi Jaka

Sæmi fróði situr í Frans
Á Select einn og drekkur vin rouge
Hann hugsar til skelksins og skröltir af hrolli
Skólaus og alslaust og allt krögt í lús
Frónskri lús, feðra lús
Kuldahrolli og huglausri lús

Séra Sæmi fróði sjálfan við djöfulinn
Mælti ef þú heggur ekki handa mér mó
Þá yrðu þið andskotinn
En ef þér tekst það með tungunni einni
Þá telst sál mín þín eign ljúfurinn
Ljúfurinn, stúfurinn
Telst sál mín þín eign ljúfurinn

Djöfullinn djöflaðist og dyngjan hlóðst upp af mó
Og munnvatnið fyllti hvert gljúfur og gil
Uns gjörðist hann móður og sótti nóg
Jæja mælti hann takk sálina en Sæmi kvað ekki par
Því svindlaðir þú hefur tungur tvær og hló
Sæmi hló, já Sæmi hló
Þú hefur tungur tvær, hann hló

Því
Séra Sæmi fróði sjálfan við djöfulinn
Mælti ef þú höggur ekki handa mér mó
Þá yrðu þið andskotinn
En ef þér tekst það með tungunni einni
Þá telst sál mín þín eign ljúfurinn
Ljúfurinn, ljúfurinn
Farðu' og reynd' ekk' aftur eyminginn
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalalala, lalalala, lalala, lalalala

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar