Kishore Kumar Hits

Spilverk þjóðanna - Njáll og Bergþóra şarkı sözleri

Sanatçı: Spilverk þjóðanna

albüm: Ísland


Úti' í Norræna bíður Bergþóra
Eftir eiginmanni sínum og hundi
Þeir koma flaumósa, fá sér tebolla
Sjænaðir úr gufu og sundi
Svo fara þau á samnorræna
Góna 'og mæna, intressant
Sýna sig og skoða aðra
Masa' og þvaðra
Þau eru róttækt menningarsnobb
Með sóma' og sanni
Þau eru róttækt menningarsnobb
Þau fara í leikhúsið, kunna leikritið
Klædd à la Adam og Eva
Skreppa í kjallarann, fá sér Manhattan
Ræða náungann, stýfa' hann úr hnefa
Þau ætla sér að eignast íbúð
Undir skarsúð, intressant
Kafka Proust og Herman Hesse
Sum fui esse
Þau eru róttækt menningarsnobb
Með sóma' og sanni
Þau eru sótsvart menningarsnobb
Njáll og Bergþóra elska' að mótmæla
Kaupa Newsweek Times og konfekt í laumi
Hanga á fundunum löngum stundunum
Kunna nallann jafnt í vöku og draumi
En byltingin er hlutavelta
Gæti skaðað fjárhaginn
Sprengjan hún er löngu sprungin
Messan sungin
Þau eru róttækt menningarsnobb
Með sóma' og sanni
Þau eru róttækt menningarsnobb

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar