Kishore Kumar Hits

Spilverk þjóðanna - Á fleytifullu tungli şarkı sözleri

Sanatçı: Spilverk þjóðanna

albüm: Bráðabirgðabúgí


Á fleytifullu tungli ég fæddist snemma' í maí
Löngu' eftir að flaug hann Gagarín
Upp í loftið bláa, síðan ólst ég upp
Skorti hvorki járn né vítamín
Ég var eins og flestir, fékk rauða hunda' og kvef
Og ekki pláss á barnaheimili
Við fluttum tvisvar þrisvar og einu sinni til
Nú stefna pabbi og mamma' að parhúsi
Ég er einn af þeim sem eiga að erfa landið
Ef eitthvað verður eftir handa mér
Og þú þarft svosem ekki' að verða hissa
Þó ekkert verði heldur handa þér

Ralalalalala, ralalalalala
Ralalalalala, ralalalalala
Ralalalalala
Íslenskt uppeldi kenndi mér að gráta' ekki
Og ekki' að bjóða fram hinn vangann
Ég slapp við uppvaskið, fékk enga fræðslu um kynlífið
Tefldi fjöltefli við páfann

Svo varð ég hluti' af unglingavandamálinu
Byrjaði að drekka um fermingu
Og alveg eins og obbinn þá veit ég ekki hvað
Ég á að gera' af mér í lífinu
Ég er einn af þeim sem eiga að erfa landið
Ef eitthvað verður eftir handa mér
Og þú þarft svosem ekki' að verða hissa
Þó ekkert verði heldur handa...

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar