Lít ég börn að leika sér, Lífsglöð, eins og vera ber, Saklaust líf þeirra er. Áfram seilast ár. - Sannleikurinn grár Kyrkir þeirra kæti Og kostar bitur tár. Slæmir draumar rætast Og skilja eftír sár, Sem sjást, þegar Lít ég gamalt fólk og grátt, Góðlegt, þótt það sé ei sátt Við sinn launamátt. Árin seilast enn. - Ungbörn verða menn. Lífsbaráttan byrjar Og bugar suma senn. Aðrir einskis spyrja Og leika sér bara' enn, því finnst mér, er Lít ég börn að leika sér, Lífsglöð, eins og vera ber, það líf henta mér.