Það er svo ósköp margt sem mig langar að segja þér Og opinbera allt svo þú sjáir hvaða mann ég geyma hef Og með hugskeyti ég sendi þér ástarbréf Ég hafði hvorki trúað á ást við fyrstu sýn Né það að örlagavefur skyldi færa mig til þín Fyrr en birtist þá mér baldursbrá og þú varðst mín Ef ég mætti aðeins spyrja þig Um örlítið Viltu með mér vera? Ég skal reyna að betrumbæta mig Rétt svolítið Á hverjum degi og gera Það rétta í hverri stöðu fyrir sig En ég er fiðrildi í hvirfilbyl Sem í auganu geymir ást og almættið Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér Í flóði bæði og fjöru ég góður vera vil og gera vel Viltu venda með mér kvæðum í koss og kel? Því ekkert getur sett í reikning okkar strik Ég trúi því og veit það að lífið er eitt eilíft augnablik Og að njóta þess til fullnustu er takmarkið Ef ég mætti aðeins spyrja þig Um örlítið Viltu með mér vera? Ég skal reyna að betrumbæta mig Rétt svolítið Á hverjum degi og gera Það rétta í hverri stöðu fyrir sig En ég er fiðrildi í hvirfilbyl Sem í auganu geymir ást og almættið Ef ég mætti aðeins spyrja þig Um örlítið Viltu með mér vera? Ég skal reyna að betrumbæta mig Rétt svolítið Á hverjum degi og gera Það rétta í hverri stöðu fyrir sig En ég er fiðrildi í hvirfilbyl Sem í auganu geymir ást og almættið Sem í auganu geymir ást og almættið