Viltu vera mér Vor í öllu hér Í sumri svalalind Og sjón ef nótt er blind Vinur vonarnaust Veisluhald um haust Ást sem undir býr Og að mér snýr Ég vil vera þér Um vetur heitur hver Sæla þín í sorg Sól í þinni borg Svo margt í minni geymt Misst og endurheimt Mig ástar eldur laust Er þú mig kaust Ó þú... mínu lífi hefur breytt... segðu mér Ó þú... segðu mér því eitt... já segðu mér Ó þú... hvað býr í þinni sál Lífsins leyndarmál Ljóst er mér þitt bál Logandi mín lund ég lofa ástarfund Svo margt í minni geymt Misst og endurheimt Mig ástar eldur laust Er þú mig kaust Ó þú... mínu lífi hefur breytt... segðu mér Ó þú... segðu mér því eitt... já segðu mér Ó þú... hvað býr í þinni sál