Heyr mína bæn mildasti blær,
Berðu kveðju mína' yfir höf,
Syngdu honum saknaðarljóð.
Vanga hans blítt vermir þú sól
Vörum mjúkum kysstu hans brá,
ástarorð hvísla mér frá.
Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóða lag,
Flytjið honum, í indælum óði, ástarljóð mitt.
Heyr mína bæn bára við strönd,
Blítt þú vaggar honum við barm,
þar til svefninn sígur á brá.
Draumheimi í, dveljum við þá,
Daga langa, saman tvö ein,
Heyr mínar bænir og þrá.
Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóða lag,
Flytjið honum, í indælum óði, ástarljóð mitt.
Heyr mína bæn bára við strönd,
Blítt þú vaggar honum við barm,
þar til svefninn sígur á brá.
Draumheimi í, dveljum við þá,
Daga langa, saman tvö ein,
Heyr mínar bænir og þrár.
Поcмотреть все песни артиста