Það var eitt sinn ógnar lítið stelpuhró Sem fór oft með mér fram að sjó Hún var klædd í ullarpeysu oná tær Með freknótt nef og fléttur tvær Saman tvö í fjörunni við undum okkur vel Meðan kollan var að kafa eftir kuðungi og skel Og á kvöldin þegar sólin sigin var Sátum við í næði, bæði, undir Stórasteini Þar sem hún, í leyni, lagði vanga sinn Ósköp feimin upp við vanga minn Síðan hef ég konur séð í Cairó Í Mandalay, í Mexíkó Líka þær sem kyrrahafið kafa í Og eiga heima á Hawaii Sumar klæddust hálmi þegar þeim var heitt En aðrar bara klæddust ekki yfirleitt í neitt Alltaf samt í huga mér og hjarta bjó Hún sem klæddist ullarpeysu undir Stórasteini Forðum tíð, í leyni, lagði vanga sinn Ósköp feimin upp við vanga minn