Kishore Kumar Hits

Laddi - Royi Roggers şarkı sözleri

Sanatçı: Laddi

albüm: Það er aldeilis


Ég fór á cowboy-mynd í gær
Spennan var gífurleg, ég varð ær
Af spennu og hrifningu' salurinn þagði
þegar aðal í myndinni kom inn og sagði:
"Ég er Royi Rogers ég er sætur og glaður
Búinn að vera' í þessum bransa í sautján ár
Ég eltist við bófa og ræningja
Og kem þeim í hendur á fógeta"
Ég er maður ég er með bófaflokk
ég brýst inn í banka og svoleiðis nokk
Rupla og ræni út um allar trissur
Roastbeef og remúlaði folöld og hryssur
Skít þig í bakið, burtu ferðu! - Ah! - Þarna sérðu!
Úúú!
Ég er indíáni, brúnn og glaður
ég er líka bisness-maður
Og sker af þér skallann, þurrka og herði
Og sel þeim hann aftur á uppsprengdu verði
Leikurinn gerist í litlum bæ
þar sem lögum og reglum er kastað á glæ
ég reyndi að fá Roy til að róa liðið
Ribbaldaforinginn stóð við hliðið:
"Hvaðan man ég eftir þessu fési,
þetta er þó ekki hann feitur Pési?"
-Jú, sá er maðurinn, mannstu' eftir mér?
"Hvort ég man! Hvað ertu' að gera hér?"
-Ég er að plana alveg glænýtt plott,
ég póstvagninn ræni og þéna flott!
"Hvað ef ég reyni að stoppa það?"
-Mér þætti gaman að sjá það!
"Dí bómdí bómdí bómsteik!"
-Við erum þrjátíu' - þú ert einn
-Þú verður drepinn ungi sveinn! (Bang! Bang! Bang!)
-Svona verður það ha!
"Þú getur ekkert nema rifið kjaft!"
"Nú skalt þú og þý út úr bænum flýja,
Ella verðurðu gataður sem mjólkursía!
Þú veist að ég er fljótastur með framhleypuna"
-En ég er miklu flinkari með harmonikkuna!
Nú kom hlé svo ég fékk mér smók
Saltað poppkorn og kalda kók
Svo þegar ég kom aftur inn
Var Roy kominn inn á búgarðinn:
"Hér er ég kominn til að skipta um föt.
Þessi eru skítug og allsstaðar göt
Ég ætla' að fara í sturtu og vera snöggur að
Þetta var mjög snöggt bað!
(Bank, bank bank!) "Hver lemur svona fast?"
Stúlkan sem þú lofaðir að trúlofast
"Þú hefur breyst þetta er engin mynd"
Er ég eitthvað kindarleg?
"Nei eins og kind!"
Roy, finnurðu' ekki nýju lyktina af mér?
"Þetta' er ekki lyktin sem er alltaf af þér!"
Nei þessi nýja alveg fyrirtak
"Hvað er hún kölluð?" - Ammóníak!
"Ég játa það fyrir þér hér og nú
ég kvenmann vill fá og hana nú"
Hættu að tauta og trúlofastu mér
"Ég á engan hring í nefið á þér!"
"Nú verð ég að finna hann feitur Pésa
þýðir ekki að sitja heima og lesa
Þú kemur með, leiðin er greið"
Er 'etta langt - "Ja svona dagleið"
"Þá erum við loks á áfangastað
Pési og þeir vita ekkert um það
Hér er planið það er ekki beisið
ég læðist inn og þú umkringir pleisið"
Hér er byssan! - "Ég þarf ekki byssu,
ég er búinn að segja þér ég geri aldrei skyssu"
Ég vona að þeir bindi ekki á þig hnút
"Þú skalt bara telja þegar ég hendi þeim út!"
Eeeeeiiiinnnnn! - "Hættu' að telja, þetta er ég!"

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar