Kishore Kumar Hits

Laddi - Tvær úr Tungunum şarkı sözleri

Sanatçı: Laddi

albüm: Það er aldeilis


Við erum tvær úr Tungunum
Og til í hvað sem er
Hundleiðar á hænsnunum
Og harðlífinu hér
Eftir fjórtán ár í forinni
Okkur finnst við verðskulda
Að stinga af úr sveitinni
Og sjá höfuðborgina
Við erum útvaxnar á ýmsum stöðum
Rauðbirknar og freknóttar
Klofnar upp að herðablöðum
Kafloðnar og kiðfættar
Nærsýnar og naflaslitnar
Og nefbrotnar í keng
Velgefnar og veðurbitnar
Valkyrjur í spreng
Við æddum inn í öngþveitið
Og ultum til og frá
Duttum inná dansgólfið
Og djöfluðumst því á
Gunna systir glenti sig
Í geysihröðum ræl
Rann svo á rassgatið
Og sneri sig á hæl
Við erum útvaxnar á ýmsum stöðum
Rauðbirknar og freknóttar
Klofnar upp að herðablöðum
Kafloðnar og kiðfættar
Nærsýnar og nýrnaslappar
Nefbrotnar í keng
Velgefnar og veðurbitnar
Valkyrjur í spreng
Velgefnar og veðurbitnar
Valkyrjur í spreng

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar