Hann elskar mig og ég er hans Og lífið elskar oss Víð búum saman undir súð Og berum sama kross Ég er lygna' í litlum læk Og hann er feiminn foss Við syngjum saman, hann og ég Því lífið elskar oss Lítið lag Við ljóðaljóð Sem skáldið bergir á Hvítur már Af unnarslóð Hann segir öllum frá