Ég sá hana á horninu á Mánabar, Hún minnti mig á Brendu Lee. Ég skellti krónu'í djúkboxið, Og hækkaði vel í því. Hún þagði bara'og lakkaði'á sér neglurnar Og þóttist ekki taka' eftir mér. Í hægðum mínum labbaði að borðinu Og sagði hátt. (Viðlag) Komdu með, ég bið þig, Komdu með, ég bið þig. Ég vona að þú segir ekki nei við mig, því trúðu mér ég dái þig. Það eina sem skiptir máli Er þú og ég. Vertu ekki að plata mig, þú ert bara að nota mig. Ég er ekki eins og allar stelpurnar Sem hoppa'upp í bíla, með hverjum sem er. Ó trúðu mér, ég er ekki að plata þig, Kæra vina viltu treysta mér. Aðeins stjörnurnar á himninum, Vita hvað í mínu hjarta býr. Ég myndi gera allt í veröldinni fyrir þig, Ef þú aðeins vildir fylgja mér. Á drekanum við rennum inðrí bæ í fjórða gír (Viðlag)