Mánudagsmorgunn á fætur ég fer Höfuðið á mér þunnt eins og gler Ég þrái að fá þig – sjá þig Sofa eina nótt hjá þér Hvað var ég að gera, hvar fékk ég að vera Í ókunnri borg svo fjarri þér Ég þrái að sjá þig – fá þig Fíla eina nótt hjá þér Tungan við góminn er eins og gróin Gerbragð í munni af öldrykkju er Ég þrái að fá þig – sjá þig Sofa eina nótt hjá þér Ég horfi út um dyrnar, geng út um gluggann Geri allt vitlaust hvar sem ég fer Ég þrái að sjá þig – fá þig Fíla eina nótt hjá þér Í hillingu heyri ég þig syngjandi sálma Svona ertu heilög í augum á mér Ég þrái að fá þig – sjá þig Sofa eina nótt hjá þér