Undir gömlum árabát er næturstaður manns Kassi merktur Tuborgöl er eina mublan hans. Stundar ekki vinnu bara betlar lítið eitt í bláleitt glas af kogara er hverri krónu eytt Fátt eitt skiptir máli og hann fréttir aldrei neitt Furðulega rólegur samt er hann yfirleitt. Fólki því sem finnst hann vera róni og flökkudýr Er einnig fjarlægt bálið sem í brennivíni býr Hann átti eitt sinn fjölskyldu já bæði bíl og hús Bakkus tók það frá honum nú eru þeir tveir dús. Fólki er svo sem sama þótt róni spræni í brók Og stolt hans var það fyrsta sem hann Bakkus gamli tók. Þó er það svo afstætt hver er aumingi og svín á dómsins æðsta degi drekkur róninn máske vín. Við háborðïð með Pétri og himnafeðgunum í hlýju þornar hlandið úr rónabuxunum.