Settu brennivín í mjólkurglasið vina því að ég er kominn heim Já skvettu brennivíni í mjólkurglasið vina því að ég er kominn heim. Nú er ég kátur og kominn af heiðinni með kindurnar hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim. Settu sláturkepp í pottinn kæra vina því að ég er kominn heim Farðu og hengdu svo upp þvottinn að ég er kominn heim Nú er ég kalinn og kominn af heiðinni með kindurnar. Hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim. Komdu krökkunum í bælið kæra vina því að ég er kominn heim Svo skaltu stoppa í þeim vælið kæra vina því að ég er kominn heim Nú er ég kæstur og kominn af heiðinni með kindurnar. Hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim. Settu Klædermann á fóninn Við skulum vanga við það hjónin kæra vina því að ég er kominn heim Nú er ég kaldur og kominn af heiðinni með kindurnar hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim. Settu hundinn út í hlöðu kæra vina því að ég er kominn heim Farðu og taktu þér svo stöðu kæra vina því að ég er kominn heim Er kominn rjóður og rakur af heiðinni með rollurnar. Hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim. Æ, farð'og snyrtu þig að neðan kæra vina því að ég er kominn heim Og reynd'að þegja rétt á meðan kæra vina því að ég er kominn heim Nú er ég crazy og kominn af heiðinni með kindurnar. Hef fengið nóg af þeim. Ég er búinn að vera svo lengi á leiðinni, loksins kominn heim. Ég er kominn heim.