Kishore Kumar Hits

Baggalútur - Jólasveinar sex og sjö şarkı sözleri

Sanatçı: Baggalútur

albüm: Jólaland


Jólasveinar sex og sjö,
Sigurreifur flokkur,
Með fulla poka af peningum
Sem þeir plokkuðu af okkur.
Stekkjastaur fór fyrstur og fékk sér bankahólf
En festi löppina inni í því — þá voru eftir tólf.
Jólasveinar tíu og tveir
Tappa úr flösku kipptu.
Útúrdrukknir urðu þeir
Og af sér skeggin klipptu.
Giljagaur tók rakhnífinn en rann í eigin slefu.
Rakaði af sér húð og hár — þá voru þeir ellefu.
Jólasveinar sex og fimm
Sátu uppá heiði.
Að þeim sótti innan skamms
Ofboðslegur leiði.
Stúfur reyndi að hressa þá með standöppsetti nýju
En steindautt krádið flæmdi hann burt — þá voru eftir tíu.
Jólasveinar níu og einn
ætluðu á sjóinn,
Enda komnir ógeð með
á að setja í skóinn.
Við mastrið Þvörusleikir hékk með stjörnustjarfaglýju.
Hann stímdi beint á tundurdufl — þá voru eftir níu.
Jólasveinar sex og þrír
í sundlaugarnar fóru.
Í setlauginni sátu þeir
En sáu ekki glóru.
Pottaskefill gafst þá upp og vildi heim að hátta
En hrasaði á sápunni — þá voru eftir átta.
Jólasveinar sjö og einn
Settust inn á knæpu,
Enduðu þar augafullir
á korteri tæpu.
Úr fögnuði þeir trylltust þegar inn gekk Auddi Blö.
Askasleikir missti þvag — þá voru eftir sjö.
Jólasveinar fimm og tveir
Fríið vildu nýta.
Fansý kvöldverð fengu sér
En fóru svo að kýta.
Hurðaskellir skellti í lás á klóinu á Kex.
Kom svo aldrei aftur út — þá voru eftir sex.
Jólasveinar þrír og þrír
þráðu ró og næði.
Læddust inn á bókhlöðu
Og lögðust þar í fræði.
Skyrgámur var hungraður en hlaðan var svo dimm.
Handritsstaflann komplett át — þá voru eftir fimm.
Jólasveinar fjórir og einn
Fengu sér í svanginn.
Dinnerinn var dýrðlegur
En dróst eitthvað á langinn.
Buðust þeim þá flennivindlar, banvænir og stórir.
Bjúgnakrækir át þá alla — þá voru eftir fjórir.
Jólasveinar tveir og tveir
Trítuðu sig í Hörpu.
Það endaði með áflogum
Og orðaskaki snörpu.
Gluggagægir flaug þá út, góðglaður og hýr.
Á glerhjúpnum sig rotaði — þá voru eftir þrír.
Jólasveinar einn og tveir,
Ansi fáliðaðir.
Fyrir löngu lokaðir
Og læstir skemmtistaðir.
Gáttaþefur, karltuskan, varð kvefaður og meyr.
Kafnaði á horköggli — þá voru eftir tveir.
Jólasveinar einn og annar
Eigruðu um bæinn,
þar til allt í einu birtist
Ameríski gæinn
í leit að millistjórnendum, sá káti kólasveinn.
Ketkrókur tók djobbinu — þá var eftir einn.
Jólasveinar einn og enginn,
Einmana og stúrinn.
Greyið komið aftur á
Ilmkertakúrinn.
Kertasníkir flúði land og keypti bar í Húll.
Kynntist sænskum Nissa þar — þá voru eftir núll.

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar