Ég vil fá mitt hangikjöt, af sílspikuðum sauðum Og svolítið af stökkum laufabrauðum. - Og þú vilt 'þarna uppstúfinn, annars ferðu að kvabba, Og upphitaða rauðkálið í bleiku blómaskálinni frá pabba. Ég vil skreyta jólatréð, en treina það fram á Þorlák. - Týpískt þú, að vilja eitthvað hálfkák. Svo vilt þú flippað meðlæti, fyrir þá sem þora. - En þú vilt bara venju samkvæmt niðursoðið dósagums frá ORA. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Skítt með allt hitt. Höldum í hefðirnar. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Allir fá sitt. Höldum í hefðirnar. Þú vilt senda jólakort en ég vil ekki sjá þau því enginn sem við könnumst við vill fá þau. - Þú vilt fara í messuna og mygla þar í friði En mér er fremur illa við alla svona kristilega siði. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Skítt með allt hitt. Höldum í hefðirnar. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Allir fá sitt. Höldum í hefðirnar. Þú vilt að allt sé eins og forðum. - Helst ekkert ókunnugt á borðum. Þú vilt kaupa furu, ég vil frekar normansþin. - Ég fríka út ef gjöfin mín er lin. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Skítt með allt hitt. Höldum í hefðirnar. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Allir fá sitt. Höldum í hefðirnar. Höldum í hefðirnar. Þú vilt fá þitt. Ég vil fá mitt. Þá erum við kvitt. Höldum í hefðirnar.