Styttist í það - að við setjum upp skrautið Skellum upp greni það styttist í það - að við lýsum upp garðinn Greiðum úr seríum Styttist í það - að við kveikjum á kertum Kósum upp pleisið það styttist í það - styttist í það Styttist í það - að við drögum fram dressið Djöfullinn sjálfur ég pass'ekk'í það - og hver á að velja Vínið með steikinni? Sérð þú um það? - Er einhver að græja Aðventudesertinn Styttist í það - styttist í það Styttist í það - að síðasta sortin Sé send inn í ofninn það styttist í það - að við reynum að redda Restinni af gjöfunum Styttist í það - að við skrúbbum burt skítinn Og skríðum í bælið það styttist í það - styttist í það Sjáðu hvað stjörnurnar loga á himninum Lýsa upp byggðir og ból Bjóða okkur öllum svo góð og gleðileg jól í sérhverju húsi og huga í borginni Hamingjan finnur sér stað í hjarta mér veit ég það eitt - nú styttist í það Styttist í það - að við förum á taugum Tökum fram sérrí Sem minnir á það - hver tekur tengdó? Talaði systir þín Við þig um það? - Því ég veit ekki hvort ég næ yfir höfuð Að díla við það - ég er að segja þér það Styttist í það - að við setjumst að borðum Biðin á enda þá styttist í það - að við ráðumst á kræsingar Röðum þeim í okkur Styttist í það - að við tökum upp pakkana Og tætum þá sundur það styttist í það - styttist í það Sjáðu hvað stjörnurnar loga á himninum Lýsa upp byggðir og ból Bjóða okkur öllum svo góð og gleðileg jól í sérhverju húsi og huga í borginni Hamingjan finnur sér stað í hjarta mér veit ég það eitt - nú styttist í það Sjáðu hvað stjörnurnar loga á himninum Lýsa upp byggðir og ból Bjóða okkur öllum svo góð og gleðileg jól í sérhverju húsi og huga í borginni Hamingjan finnur sér stað í hjarta mér veit ég...