Um frægðarmenn og kappa við fáum oft að heyra En fáa veit ég líka honum Siglufjarðar-Geira Að erfiðleikum sínum hann alltaf gaman henti Og ef að hann í sérstöku klammaríi lenti Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" Í æsku hans á böllum voru áflog fastur liður Og allra manna fyrstur var hann jafnan sleginn niður En þegar hann svo stóð upp aftur eftir meðferð slíka Með augu bólkin, sprungna vör og nefið brotið líka Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" Hann ungur gerðist formaður á mótorbátnum Brandi Og bein úr sjó hann aldrei dró, en lenti oft í strandi En Geira stóð á sama, hann öxlum sínum yppti Og er hann bátnum strandaði í tuttugasta skipti Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" Hann eitt sinn fékk sér konu; af öðrum konum bar hún En ekki nema' í meðallagi dyggðug kona var hún Hún elskaði hann talsvert, en aðra talsvert meira Og er hún að lokum skildi við manninn sinn hann Geira Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" En dag einn sýndist karlinn eitthvað lumbrulegur vera Og læknarnir þeir tóku hann og fóru strax að skera Og er þeir höfðu burt úr honum skorið fleira og fleira Svo fækkað hafði stórlega innyflum í Geira Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" Og kvöld eitt fékk hann aðkenning af alvarlegu slagi Og innan stundar fékk hann slag af miklu verra tagi Og þegar nóttin lagðist yfir haf og yfir hauður Og heiðurskarlinn Geiri virtist loksins alveg dauður Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því" Sagð'ann: "Lífið er lotterí Já, það er lotterí Já, það er lotterí Og ég tek þátt í því"