Þegar ófært er í huga mér, ég gefst ekki upp Og ef von vafra ég inum Jú þá, þá er held ég ástæðan Alltaf þú. því þú heldur mér fast Og hendir mér svo í hylinn á ný Eins og flækingi, en ég fer ekki neitt. Ég fer ekki neitt Hvernig hatur og ást þín að eilífu slást Er að fara með mig. Ég fer ekki neitt! Því í hjarta mér finn Að ég verð alltaf þinn Og það fer alveg með þig. Ég fæ nóg, nóg, oft Og feginn mér flýti út. En samt aftur, aftur, aftur er ég hér Og alls engin skýring Hvað dregur mig að þér Ég fer ekki neitt Hvernig hatur og ást þín að eilífu slást Er að fara með mig. Ég fer ekki neitt! Því í hjarta mér finn Að ég verð alltaf þinn Og það fer alveg með þig. Ef þú fleygðir mér burt Og ég færi minn veg Við fyndum það strax Hversu rangt þetta er, Svo ég verð bara hér Já ég verð hér hjá þér. Ég fer ekki neitt þó ég horfi á þig þjást Bæði' af hatri og ást Og það fer alveg með mig. Ég fer ekki neitt -- nei ég fer ekki neitt! Þó að blóð, sviti og sár Eftir öll þessi ár Fari alveg með mig. Þó að öll þessi tár Fari alveg með mig.