Með höfuð undir væng, Skuggar fall'á þína kinn. Nóttin hlustar á þinn Andardrátt. Ég sest á þína sæng, Fingur snerta vanga þinn Og ég vona að þú vaknir brátt. Næturmáninn skín Og hann ljósi finnur leið þegar gluggatjöldin bærast af og til. Elsku ástin mín, þú sem fyllir huga minn Af orðum vara þinn og þeirra yl. Þú sem ert mér allt. Þú sem ert mér allt. Ást mína og þrá Alla muntu sjá. Allt sem þú vilt fá. Er þú liggur hér Virðist framtíðin svo skýr, Svo auðveld viðureignar, Svo yndisleg. Svo bærir þú á þér Og þú opnar augun þín. Er lítur þú á mig, segi ég: Þú sem ert mér allt. Þú sem ert mér allt. Ást mína og þrá Alla muntu sjá. Allt sem þú vilt fá, í nótt. Í nótt. Í nótt. Í nótt. Þú sem ert mér allt.