Þegar regnið stígur rifinn dans Og ristir hugann minn Meðan ligg ég undir lífi Læðist kvöldið inn Nú veitist ég að veggjunum Sem veittu áður skól Draumunum sem deildi ég Með dularfullri sól Veistu - Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber Skýin skýla himninum Við sólarinnar sýn Ég vona að ég sofni svo ég komist fljótt til þín En draumar líða undir lok Að endingu ég bið Að ef ég verði að vakna Verðir þú þá mér við hlið Veistu - Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber Ég horfi í gegnum gluggann Að gá hvort þú sért þar ég hrópa út í helliregn En heyri aldrei svar Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber Ég flækist í þinn vef Og meðan ég sef Liggur þú hjá mér þá lýkur minni leit Og hjarta mitt veit Hvaða hug ég til þín ber