Ég ætla að kveikja á kerti Því kuldalegt nú er Og drungalegir dagarnir Og dimmt í heimi hér Ég ætla að kveikja á kerti Kveikja ljós hjá mér Ég ætla að kveikja á kerti Því klukkan hún er margt Og allt er hér svo óskaplega Annarlegt og hart Ég ætla að kveikja á kerti Því kvöldið er svo svart ♪ Ég ætla að kveikja á kerti Þá kærleikann ég finn Og ljósið fer að lýsa mér Og lifnar heimurinn Ég ætla að kveikja á kerti Svo komist ljósið inn ♪ Ég ætla að kveikja á kerti Því kannski hækkar sól Og kannski verður aftur vor Og vaknar allt um ból Ég ætla að kveikja á kerti Svo koma bráðum jól. Ég ætla að kveikja á kerti Svo koma heilög jól.