Hvers virði er allt heimsins prjál Ef það er enginn hér Sem stendur kyrr Er aðrir hverfa á braut. Sem vill þér jafnan vel Og deilir með þér gleði og sorg þá áttu minna en ekki neitt Ef þú átt engan vin. ♪ Hvers virði er að eignast allt í heimi hér En skorta þetta eitt Sem enginn getur keypt. Hversu ríkur sem þú telst Og hversu fullar hendur fjár þá áttu minna en ekki neitt Ef þú átt engan vin. Það er komin vetrartíð Með veður köld og stríð. Ég stend við gluggann Myrkrið streymir inní huga minn. Þá finn ég hlýja hönd Sál mín lifnar við, Eins og jurt sem stóð í skugga En hefur aftur litið ljós. Mín vetrarsól.