Ég skil ekki enn hvað það var sem þú vildir, Vonir þínar urðu strand. Mér fannst eins og þú vildir alltaf eiga Einhverskonar draumaland. Þér fannst enginn eldur hjá okkur og lífið Ekki ganga réttan veg Og þig fór að dreyma um einhvern þarna úti Sem ekki var jafn sljór og ég. Og þér er sérhver dagur nýr. Sjálfsagt nýjar óskirnar. En ég, ég geng hér um og gæti Garðsins þar sem hjartað býr. Ég verð hérna enn, því er óhætt að treysta Ef þig skildi vanta skjól Eitthvert kvöld er þú verður leið á að leita Landsins fyrir vestan sól. En ég, ég geng hér um og gæti Garðsins þar sem hjartað býr. Ég verð hérna enn, því er óhætt að treysta Ef þig skildi vanta skjól Eitthvert kvöld er þú verður leið á að leita Landsins fyrir vestan, Landsins fyrir vestan, Landsins fyrir vestan sól.