Það búa ýmis öfl í þér Og óskin þig á vængjum ber. Ef allt er rétt sem okkur býr í grun þá undrið stóra gerast mun. Þú getur orðið margt ef markið hátt er sett Og munað hverja stund að treysta Guði og breyta rétt. Þú átt ævintýraframtíð fyrir þér. Allt fæst ef nógu vogað er. Seiður í brosi þínu býr Og bjartur heilsar morgun nýr. Vöskum dreng er þörf að reyna þrótt því skal á brattan, vinur, sótt. Þú getur unnið stríð, þó standi nokkuð tæpt Ef styrk í armi hefur og værðarinnar mók er svæft. Sjaldan brýtur gæfumaður gler. Það búa ýmis öfl í þér.