Kishore Kumar Hits

Björgvin Halldórsson - Nótt eftir dag şarkı sözleri

Sanatçı: Björgvin Halldórsson

albüm: Gullvagninn: vinsælustu lögin


Ég þarf ekki að pæla til að skilja
Hvaða skref þú ætlar þér.
Hvað sem líður vonum eða vilja
Verð ég aleinn eftir hér.
Nótt eftir dag, dag eftir nótt
Dvel ég í fangi þínu.
Ég þarf ekki að hugsa til að vita
Að þú vilt mig ekki meir.
Ég finn hvorki kulda eða hita,
ég er klettur, ég er leir.
Nótt eftir dag, dag eftir nótt
Dvel ég í fangi þínu.
Þó ég viti vel að nú er annar þar,
ástin í lífi mínu.
Ég þarf enga heimspeki til,
Enga hughreystingu til að svæfa mitt hjarta í ró.
Þarf hvorki reglur né ráð,
Enga réttlætingu til að fela mín blæðandi sár.
Því ég elska þig enn,
Hvað er það sem hrífur þig svo fljótt úr faðmi mér?
Hvað er það sem hrindir mér svo hratt úr huga þér.
Hvar er hamingjan þá?
Hvar er hamingjan þá?
Nótt eftir dag...
Og ég þarf enga sálfræði til,
Engin sérfræðiráð til að hemja minn nærandi hug.
Engar afsakanir, engar útskýringar
Til að sætta mig við orðinn hlut.
Því ég elska þig enn,
Hvað er það sem töfrar þig og tælir þig frá mér?
Hvað er það þig að mig að mér í hjarta þér?
Hvar er hamingjan þá?
Hvar ert þú?
Hvar er hamingjan þá?
Hvar er hamingjan þá?

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar