Sumt fólk hefur eitthvað sérstakt við sig Sem virkar þannig að það heillar þig. Slíkt fólk, þú tekur eftir því hvar sem það fer, Og einmitt um daginn mig henti þá Að ókunna stúlku mér litið varð á. En þá gerðist eitthvað sérstakt inn í mér. Ég er að tala um þig ég er að tala um þig. Þessi stúlka ert þú þú - þú - þú. Manstu þegar ég bauð þér fyrst út Er ég yrti á þig þú hrökkst í kút, Svolítið smeyk en á endanum þú samþykktir það. Og nú finnst mér eins og við höfum ávallt þekkst það hefur eitthvað stórfenglegt gerst. Eitthvað sem fyrir mér hefur breytt stund og stað. Ég er að tala um þig... Ef hægt er að segja um nokkurn mann Að ástina hann fann, þá er það ég. Allt sem þig snertir það á svo vel við mig, Mér finnst þú stórkostleg. Ég er að tala um þig...