Við Reykjavíkurtjörn á rölti eftir dansleik ég stúlku leit, og nú ég veit Að þá fór lífið á stjá. Þá sælu sumarnótt Sungu regnvot strætin Um hamingjuna sem þá var Rétt innan seilingar. Í bárujárnshús við Bergþórugötuna Bar ég okkar skrifpúlt, stól og rúm. Gleði og trú, bjartsýni, æska og von Borgarbarna veganesti var. Og ennþá niðr'að tjörn ég einatt reyka á kvöldin. Og margt ég sá, sem minnti á það allt sem lifði ég þá. Þá sælu sumarnótt Er sungu regnvot strætin Um hamingjuna sem þá var Rétt innan seilingar. Og bárujárnshús við Bergþórugötuna Bíða þess að lifna eitt og eitt. Af gleði og trú, bjartsýni, æsku og von Barna sem að hefja lífið þar. Í bárujárnshús við Bergþórugötuna Bar ég okkar skrifpúlt, stól og rúm. Af gleði og trú, bjartsýni, æsku og von Barna sem að hefja lífið þar.