Ég lifi í draumi, dregi hvergi mörkin Dags og nætur, sveiflast aðeins ósjálfrátt. Í hægum gangi, á fullt í fangi Með að finna það sem oftast reynist öfug átt. Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum, Lentur hringsólandi á vegi miðjum. Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin Dags og nætur, sveiflast aðeins ósjálfrátt. Ég lifi í tómi, tek engan þátt í Trylltum dansi fólksins allt í kringum mig. Aleinn á randi, veit að minn vandi Er að vera þar sem enginn getur áttað sig. Það er líkt og ég sé lagstur út í bili, Leitandi að bát á réttum kili. Ég lifi í tómi, tek engan þátt í Trylltum dansi fólksins allt í kringum mig. ♪ Ég lifi í veröld, veit ekki hvaðan Vindar þjóta, en þeir fara framhjá mér. Einskonar fangi á víðavangi Eða varnalaus gegn því sem er á meðan er. Það er líkt og ég sé lamaður af ótta, Líf mitt rennur burt á hröðum flótta. Ég lifi í veröld, veit ekki hvaðan Vindar þjóta, en þeir fara framhjá mér.