Völundur á málm og tré Smíðar allt sem ég sé Og vitund mín opnast þér Meðtekur troðnar slóðir þú kennir mér að fara yfir farinn veg Og sjá það sem mér yfirsést En aðrir gætu séð Allt sem ég sé er öðrum að þakka Allt sem ég veit hefur mér verið sagt Allt sem að er hefur verið hér áður Jafnvel líka þú Ég bý í hægra eyranu á þér Segi þér hvernig skilja skal það sem að við þig var sagt Og hvernig á að bregðast við Lífinu í raun Allt sem ég sé er öðrum að þakka Allt sem ég veit hefur mér verið sagt Allt sem að er hefur verið hér áður Jafnvel líka þú Allt sem ég sé er öðrum að þakka Allt sem ég veit hefur mér verið sagt Allt sem að er hefur verið hér áður Jafnvel líka þú