Það gerist ekki margt í kringum mig. Hver dagur öðrum líkur, Snýst um sjálfan sig. Ef ég lygni aftur augunum Gleymi mér í myndunum, Verð þátttakandi í sögunum, ímyndun Þá breytist ansi margt í kringum mig. Hver stundin verður Marglit óvænt upplifun. Viðlag: Þá rignir á mig frjókornum, ég get ekki staðið. Allt í einu sé ég Blómaróshafið. Ég stunda líka garðyrkju, Vökva gjarnan blómin, Heyri hrópa á mig, Bjartan álfaróminn. Svo opna ég augun einn dag Og sé það eru komnir fleiri Og veit að ég þarf ekki að fara Og veit að&. Viðlag& Svo opna ég augun og sé Að það er enginn hér nema ég Og ég veit að ég þarf að fara.