Þegar ég horf'á þig Mér finnst ég vera til. Allt verður auðvelt, Allt verður einfalt. Getur verið Að samanlagðar sálir Geti einhverju breytt? Þegar ég horf'á þig Lifna dauðir hlutir við. Steinarnir ilma, Gráta og hlæja. Getur verið Að samanlagðar sálir Geti einhverju breytt? Að allt verði yfirstigið, öll náttúrunnar lögmál? Og við svífum um loftin, Tvær ástfangnar flugvélar. Yfir úthafinu ég elska þig, það sér okkur enginn þar. Og við svífum um loftin, Tvær ástfangnar flugvélar. Í fimmþúsund fetum ég kyssi þig Og býst svo til lendingar. Þegar ég horf'á þig Er veröldin svo smá. Í faðmlagi okkar, Jörðin og sólin. Getur verið Að samanlagðar sálir Geti einhverju breytt? Að allt verði yfirstigið, öll náttúrunnar lögmál? Og við svífum um loftin, Tvær ástfangnar flugvélar. Yfir úthafinu ég elska þig, það sér okkur enginn þar. Og við svífum um loftin, Tvær ástfangnar flugvélar. Í fimmþúsund fetum ég kyssi þig Og býst svo til lendingar. Já, við svífum um loftin, Tvær ástfangnar flugvélar. Yfir úthafinu ég elska þig, það sér okkur enginn þar.