Kishore Kumar Hits

Nýdönsk - Þá kemur þú şarkı sözleri

Sanatçı: Nýdönsk

albüm: 1987-2007


Þrýstingurinn í loftinu er veðrið inni í mér
Og þó ég lækki um eitt millibar
Get ég ekkert sagt á ekkert svar
Stormurinn á undan logninu er biðin eftir þér
Nú spáir roki og spáir kvíða
áframhaldandi kuldum víða
Hvenær get ég hætt að skríða
Og gengið uppréttur?
Svo kemur þú
Svo kemur þú
þá rofar til á milli hríða
þú ert friðurinn á milli stríða
Svo kemur þú
Svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða
Sunnanátt og almenn þíða
Þó ég biðji um nýja veðurspá er ekkert víst að úr henni rætist
Er áhugasamur um eigin gróður
En hef aldrei verið veðurfróður
Og lægðirnar sem leggjast á mig koma í veg fyrir að ég kætist
þegar dagurinn verður aldrei bjartur
Og hugurinn orðinn bikasvartur
Eins og óbotnaður fyrri partur
órímaður
Þá kemur þú
þá kemur þú
þá rofar til á milli hríða
þú ert friðurinn á milli stríða
Svo kemur þú
Svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða
Sunnanátt og almenn þíða
Svo kemur þú
Svo kemur þú
þá rofar til á milli hríða
þú ert friðurinn á milli stríða
Svo kemur þú
Svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða
Sunnanátt og almenn þíða
Svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða
Sunnanátt og almenn þíða

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar