(Eyrað) Hölluðum hurðum er best að loka. Þó veggirnir hafi ekki eyru Eru eyru á bak við. Þau heyra þig hvísla og klappa af kæti. Greina jafnvel aldur þinn af hljómfalli. (Augað) Þú getur heyrt fyrir horn í því sem er fjarri Hlustað á tónlist og samtöl við aðra. En ég get séð hendur sem handleika fiðlur Og hljómsveitarstjórann sem telur í. Halla undir flatt Horfi lóðréttum augum á Fingurna strjúkast við streng. Tónarnir nálgast Hlustirnar taka við. Skynjunin er ekki lengur mín. (Eyrað) Hlusta á fiðlurnar byrja með léttum dansi. Litla tromma tifar, túbur leysa vind Þrumandi bassar og tónlistin hækkar Breytist í orrustugný hámarkinu er náð. Hljómurinn fellur, Hlusta láréttum eyrum á Fingurna sleppa sínum streng. Tónarnir deyja, Sjónin tekur við. Skynjunin er ekki lengur mín.