Inn í brjóstinu býr ástin Og þú gengur með tvö Trúir öllu sem ég segi Og mér treystir frá A til Ö Sá sem raðar öllu og flokkar Kemst á þá endastöð Að kaflarnir í lífi okkar Eru aldrei í stafrófsröð Stundum finn ég ekki orðin Sem að eiga að tjá minn hug Þegar bregst mér svo orðaforðinn Að ég hef mig ekki Ég hef mig ekk'á flug Ég er reglusamur maður Og finn öllu sinn rétta stað Samt er tilhugalíf mitt staður Þar sem óreiðan ríkir, og það Er erfitt að finna orðin Sem að eiga að tjá minn hug Þegar bregst mér svo orðafimin Að ég hef mig ekki Ég hef mig ekk'á flug Yfir himinblámann hafinn Þar sem þú bíður eftir því Að ég finni sólarstafinn Sem að skrifar í þín ský En ég finn bara ekki orðin Sem að eiga að tjá minn hug Þegar bregst mér svo orðaforðinn Að ég hef mig ekk'á flug Stundum finn ég ekki orðin Sem að eiga að tjá minn hug Þegar bregst mér svo orðaforðinn Að ég hef mig ekki Nei, ég hef mig ekk'á flug