Félagslíf plantna er fábrotið Og eftirsóknarvert Hver á sinn stað og jafnvægi Ofurnáttúruleg Enginn þarf að vita hvað Hendir önnur beð Jafnvel illgresið hefur hvorki Aðra heyrt né séð Ég vildi að ég væri planta Af einföldustu gerð Við gætum vaxið saman Við okkar greinargerð Félagslíf plantna er fábrotið Þar hugsar hver um sig Allt sem þarf er réttur raki Hita og birtustig Sætar krónur sveiflast til Safa- og litríkar Það freista ekki fræja okkar Heimsins skrúðgarðar Ég vildi að ég væri planta Af einföldustu gerð Við gætum vaxið saman Við okkar greinargerð Eins og fjölhæf planta Sígræn ársins hring Ánægð á alla kanta Og gróður allt um kring